Hæææj ;´*
Það var fínn dagur í dag, fór í skólann og sollis og það var bara mjög skemmtilegt. Við fórum fyrst í stærðfræði og ég lét Erlu vita að ég sendi henni stærðfræðisöguna mína og svo var hún alltaf eitthvað að glotta til mín í tímanum svo ég var að spá í hvort hún hefði lesið söguna og þá sérstaklega sem stóð um stærðfræðitímana:
,,
Það sem truflar mig mest í stærðfræðitímum er þegar kennarinn
verður reiður út í einhvern í bekknum og þá á hún það til að öskra mjög hátt og áberandi og það truflar einbeitinguna.
,,
en svo var hún ekkert búin að lesa hana svo hún er bara skrítin að glotta svona. Hver veit það ekki? En svo í heimilisfræði bökuðum við einhverjar skonsur sem brögðuðust ekkert eins og skonsur og voru bara frekar harðar :/
Í seinasta tímanum vorum við í ensku og Hemmi setti Pink Panther í og ég sá náttla ekki hana þegar ég var á Bíldó svo ég skildi ekki neitt í neinu og sast bara hjá stelpunum og var að horfa á Family Guy í iPodnum hans Aronar T. og svo kemur Ásta gangandi til mín og er svo almennileg að láta mig vita seinustu mínútuna að við eigum svo að gera verkefni um þessa mynd ;D Sniðuugt,..sérstaklega þeir sem voru að horfa á hana sem..hóst...voru engir. Jón og Addi voru beinlínis sofandi á gólfinu og allir voru að gera eitthvað allt annað en að horfa á þessa fáránlegu mynd.
Eftir skóla fóru ég og Hulda í tónó og allt í gúddí ( tónfræði ) og svo fór Hulda í flaututíma og ég var á eftir henni og var dregin inn í tímann hennar Huldu til að spila með henni dúett sem við fengum í fyrra. Og sjálf var ég í klukkutíma eftir það í flautunni og svo var kennarinn minn (sem er eitthvað rugluð
að vera eitthvað geggja almennileg (hélt hún) og hélt mér inni miklu lengur svo ég gæti hlustað á klassíska músik af einhverjum disk sem hún var nýbúin að fá og var svo ánægð að ég gæti hlusta á hann
Og ég var alltaf að reyna að komast út en hún var bara ,,Hvað ætli næsta lag verði??!
" og ,,var þetta ekki flott lag?!" og ég bara ,,uu...júú mjög fínt" og var að drepast úr leiðindum. En svo fékk ég að fara og hjólaði til Bryndísar en hún var bara ekki heima svo ég gerði ráð fyrir að hún væri heima hjá Perlu og fór þangað og var barar að tralla á trampólíninu og fór svo heim að éta og er eitthvað að nördast hér með Pjakk á höfðinu 
fyrirgefið langlokuna og skemmtið ykkur vel að lesa hana : P
Heeiðrún